NETLA VEFTÍMARIT UM UPPELDI OG MENNTUN

Í Netlu – Veftímariti um uppeldi og menntun eru birtar fræðilegar ritrýndar greinar á íslensku og ensku en einnig ritstýrðar frásagnir af þróunarstarfi, umræðugreinar, hugleiðingar, pistlar, viðtöl, ritfregnir og ritdómar um uppeldis- og menntamál. Þegar við á er leitast við að nýta kosti vefsins sem miðils og höfundar hafa í nokkrum tilvikum birt efni með hljóðdæmum og lifandi myndum. Sérrit hafa ýmist verið þemabundin eða tengd ráðstefnum um menntavísindi og birt ritrýnt efni og greinar af fræðilegum toga.

Mest efni í tímaritinu er á íslensku en ritrýndum greinum fylgja útdrættir á ensku og hvatt er til birtingar greina á ensku. Birting greina á öðrum tungumálum getur komið til álita. Öllum innan lands og utan er heimilt að senda efni í ritið og allt efni tengt uppeldi og menntun er tekið til athugunar hjá ritstjórn hvort sem byggt er á rannsóknum og fræðastarfi eða innsýn og reynslu.

Ritnefnd skipa akademískir starfsmenn á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og eru ráðgefandi fyrir ritstjóra tímaritsins. Sérrit Netlu og ráðstefnurit hafa að jafnaði lotið sérstakri ritstjórn á vegum Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands í samráði og samvinnu við ritstjórn Netlu.

Ekki er um fastan útgáfutíma að ræða í Netlu – Veftímariti um uppeldi og menntun heldur birtist efni um leið og það er tilbúið. Hægt er að skrá sig á póstlista og fá öðru hverju sendar tilkynningar um nýtt efni. Þeir sem hafa áhuga á að koma efni á framfæri í ritinu geta snúið sér til ritstjóra. Athugið að ekki er tekið við innsendum greinum í desember. Ritstjórnir ráðstefnurita og sérrita Netlu kalla sérstaklega eftir efni í þau.

Allar greinar allt frá stofnun ritsins 2002 ásamt ráðstefnu- og sérritum frá 2009 má finna á vefsetri Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun á slóðinni https://netla.hi.is. Allar ábendingar um útgáfuna eru vel þegnar.

Ritstjórar:

Amalía Björnsdóttir, prófessor  (amaliabj@hi.is)

Jón Ásgeir Kalmansson, aðjunkt (jonkalma@hi.is)

Ritnefnd:

Björn Rúnar Egilsson
Annadís G. Rúdólfsdóttir
Atli Harðarson
Elsa Eiríksdóttir
Freyja Hreinsdóttir
Jón Yngvi Jóhannesson

Hér má sjá upplýsingar um ritstjórn frá upphafi

Megintilgangur tímaritsins er að auka þekkingu og faglega umræðu um uppeldis og menntamál á Íslandi með því að birta fræðilegt efni í formi ritrýndra greina, ritdóma og ítardóma. Skilyrði fyrir birtingu ritrýndra fræðigreina er að þær feli í sér nýnæmi og hafi ekki birst á öðrum vettvangi. Greinar geta verið á íslensku eða ensku en greinar á ensku skulu fela í sér alþjóðlegt nýnæmi – sjá upplýsingar fyrir höfunda.

Það kostar ekkert að senda inn grein í fræðiritið og enginn umsýslukostnaður er innheimtur vegna ritrýniferlis eða útgáfu. Greinar sem birtast í tímaritinu birtast einnig á Skemmunni og í Opnum vísindum.

Veftímaritið er í opnum aðgangi samkvæmt leyfi CC  by 4.0 og notendum og stofnunum er frjálst að deila, afrita og dreifa efninu á hvaða miðli eða snið sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel í viðskiptalegum tilgangi. Notendum er heimilt að lesa, hlaða upp, afrita, dreifa, prenta, leita í og tengja við fullan texta greina án fyrirfram fenginnar heimildar útgefenda eða höfunda svo lengi sem vísað er til heimildar. Höfundar halda dreifingarétti á greinum sínum.

Open Journal Systems (OJS) er hugbúnaðarforrit þar sem hægt er að gefa út fræðitímarit í opnum aðgangi.

Netla ásamt nokkrum öðrum íslenskum fræðitímaritum er gefið út í OJS.

Vefsvæði OJS (Open Journal System)

Almennar fyrirspurnir berast til verkefnastjóra Menntavísindastofnunar eða til ritstjóranna sjálfra. 

  • Anna Bjarnadóttir verkefnisstjóri - sími: 525 5931 - netfang: annabjarnadottir@hi.is
  • Amalía Björnsdóttir, ritstjóri - amaliabj@hi.is
  • Jón Ásgeir Kalmansson, ritstjóri - jonkalma@hi.is