Höfundar: Íris Björk Eysteinsdóttir og Íris Ellenberger.
Markmið þessarar rannsóknar er að skilja hvernig staða hinsegin nemenda er í grunnskólum í Kópavogi og hvernig námsumhverfi þeirra er háttað.
Niðurstöður gefa til kynna að skólastjórnendur í Kópavogi séu jákvæðir í garð hinsegin fólks og vilji gjarnan skapa jákvætt og öruggt skólaumhverfi fyrir hinsegin nemendur. Þó skortir stefnumörkun og verkferla hjá sveitarfélaginu í þessum efnum og skólarnir virðast ekki fá nægan faglegan stuðning til að taka á málinu með róttækum og markvissum hætti.
Útgáfudagur: 5. mars 2025