Menntaumbætur og afdrif þeirra: Fyrstu tíu ár heildstæðrar þjónustu og reksturs grunnskóla hjá Reykjavíkurborg 1996-2005

Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun: Sérrit 2022 – Menntaumbætur og afdrif þeirra: Fyrstu tíu ár heildstæðrar þjónustu við reksturs grunnskóla hjá Reykjavíkurborg 1996-2005 er gefið út á vegum Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Ritstjóri: Jón Torfi Jónasson. Katrín Johnson annaðist verkefnisstjórn útgáfunnar fyrir hönd Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.

Útgáfudagur: 13.2.2022

Anna Kristín Sigurðardóttir, Gerður G. Óskarsdóttir, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Ingunn Gísladóttir og Steinunn Stefánsdóttir.
Menntaumbætur og afdrif þeirra: Fyrstu tíu ár heildstæðrar þjónustu og reksturs grunnskóla hjá Reykjavíkurborg 1996–2005.

Stefnumörkun og umbótaverkefni á vegum opinberra aðila til að efla og bæta skólastarf er hluti af þróun skóla og skólakerfa um allan heim. Í þessu riti er sjónum beint að menntaumbótum hjá Reykjavíkurborg og afdrifum þeirra í kjölfar tímamóta í sögu grunnskóla hér á landi þegar þjónusta við þá og rekstur fluttist frá ríki til sveitarfélaga. Niðurstöður benda til að áherslur í stefnunni sem snertu ytri umgjörð skólastarfs séu enn við lýði. Kall grunnskólakennara eftir faglegri forystu skólastjórnenda bendir til að áhersla á leiðtogahlutverk stjórnenda hafi ekki náð fullri fótfestu. Áhrifin af stefnu um nám og kennslu undir merkjum einstaklingsmiðaðs náms voru meiri í orði en á borði og þrátt fyrir áherslu á víðtækt samstarf og margvíslegan stuðning með símenntun og ráðgjöf náði stefnan ekki að festa rætur í daglegu skólastarfi, þótt hugtakið lifi góðu lífi í opinberri umræðu. Niðurstöður á þessu sviði studdu kenningar um sífellda endurtekningu eldri hugmynda og íhaldssemi í kerfinu. Á heildina litið virðist sú stefnumörkun og þær umbótaaðgerðir sem ráðist var í á tímabilinu sem hér er til skoðunar engu að síður hafa einkennst af flestum þeim þáttum sem fræðimenn hafa talið farsæla.