Höfundar: Eyþór Eiríksson og Jóhann Örn Sigurjónsson.
Hugsandi skólastofa (e. thinking classroom) er kennslunálgun sem snýst um að skapa rými þar sem nemendur vinna saman að verkefnum sem eru hönnuð til að styðja nemendur við að öðlast skilning á nýjum hugtökum og hugmyndum með samræðum. Í þessari rannsókn var fylgst með kennslu eins stærðfræðikennara í íslenskum framhaldsskóla. Markmið rannsóknarinnar var að veita kennaranum endurgjöf á gæði eigin kennslu þegar kennt er eftir hugmyndafræði hugsandi skólastofu og veita innsýn í sjálfsrýni hans á niðurstöðunum.
Niðurstöðurnar sýna fram á að í íslensku samhengi er hægt að nota aðferðir hugsandi skólastofu til að búa til menningu þar sem nemendur vinna í sameiningu að krefjandi viðfangsefnum sem reyna á greinandi hugsun. Kennari hefur svigrúm til að biðja um rökstuðning og útskýringar. Það gefur nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á verkefninu og lausnaferlinu. Samræður byggja á svörum nemenda og hafa þau tækifæri til að útskýra, segja frá og beita virkri hlustun. Hugsandi skólastofa virðist gefa tækifæri til að veita nemendum endurgjöf sem kennarinn hefði þó getað nýtt sér betur. Niðurstöður gefa einnig til kynna að hópumræða eftir vinnu og glímu nemenda við stærðfræðihugtök skapi aðstæður til sýnikennslu á efstu þrepum og sé heppilegri heldur en að hugtökin séu kynnt fyrir nemendum áður en þau vinna með þau.
Útgáfudagur: 18. febrúar 2025